Jólalög fjölbreytileikans
Már hefur alltaf verið sökker fyrir groove tónlist: Hlustið bara á bassaganginn. Dásamlegt lag.
Íslenskir klassíkerar eru líka til þess fallnir að bræða margan anti-jólistann. En svo eru líka aðrir sem fá gæsahúð og grænar þegar jólahjól fer að hljóma en þetta er líka uppáhaldsjólalagið hans Valdimars.
Birgir kennari er sérlegur áhugamaður um undarleg jólalög og hér má heyra eitt í víkingastíl hjá blóðbræðrum Skálmaldar í hljómsveitinni Amon Amarth
Kennarinn með ömurlega tónlistarsmekkinn gæti látið sér nægja að hlusta á þennan kappa hér fyrir neðan og engan annan fyrir jólin. Í þessu dásamlega ÞúSkjás myndbandi eru öll jólalög Sufjans tekin saman. Tæpir fimm tímar takk fyrir. Verði ykkur að góðu.
Uppáhaldsjólalagið hans Óla er
Uppáhaldsjólalagið hans Mána er Snjókorn falla
Uppáhaldsjólalagið hans Benedikts er Jingle Bells
Uppáhaldsjólalagið hans Eysteins er ekki til
Uppáhaldsjólalagið hennar Ölmu er All I want for Christmas með Mariah Carey og Justin Bieber
Uppáhaldsjólalagið hennar Barbáru er Komdu um jólin með Gunna Óla
Uppáhaldsjólalag Helgu, Magneu Örnu og Ólafar er All I Want for Christmas með Mariah Carey
Uppáhaldsjólalagið hennar Heklu er Last Christmas með 80´s hetjunum í Wham!
Uppáhaldsjólalag Völu er Ég hlakka svo til með Svölu Björgvins
Mér finnst þetta svo skemmtilegur liður að ég ætla að halda áfram að setja inn nokkur lög hér. Hér er til dæmis frábært lag með bresku hljómsveitinni Darkness sem heitir Christmas Time (Don´t let the bells end)
Sumir segja að Queen sé besta vonda hljómsveit í heimi. Hér er allavega eitt hrikalega gott jólalag!