Við ákváðum það eftir síðustu annaskil að við myndum skipta bekkjunum upp í hópa til þess að vinna að stóru jólaverkefni í 7. bekk. Nú er það verkefni farið af stað og allir hópar farnir að vinna að því að skila inn sínum svörum. Hver hópur á sína undirsíðu undir 7. bekkjar-flipanum hér að ofan og þar verður hægt að sjá vinnu hvers hóps fyrir sig. Hver hópur hefur ritstjóra sem hefur yfirumsjón með því hvað fer inn á sína hópasíðu.
Verkefnið tekur til margra þátta, þar á meðal trúarbragðafræðslu, samfélagsfræði, íslensku, lífsleikni, leikrænnar tjáningar, samskipta og samvinnu, svo eitthvað sé nefnt.